Tix.is

Um viðburðinn

Reynir Tómas Geirsson fv yfirlæknir á Kvennadeild Landspítalans segir frá tilurð hins fræga refils sem varðveittur er í Bayeux í Frakklandi. Hann var saumaður í léreft að öllum líkindum í Kent á Englandi um 1076. Refillinn er samfelld myndaröð og lýsir einni mestu orrustu sem orðið hefur á Bretlandseyjum, orustunni við Hastings árið 1066 þegar innrásarlið frá Normandí réðst inn í England og hafði sigur. Refillinn sem er 70,34 metra langur er eitt mesta þjóðargersemi Frakka enn í dag.

Reynir Tómas segir frá saumaaðferðinni, – refilsaum sem er frá tímum víkinga og hvernig hann hefur varðveist í gegnum aldirnar. Einnig rekur hann söguna sem myndirnar á reflinum túlka. Reynir er afar góður sögumaður og innblásinn af efninu. 

Veitingahúsið er opið fyrir matargesti eftir kl. 18:00 – borðaframboð er takmarkað og því nauðsynlegt að að panta borð fyrirfram í síma 437 1600 eða með tölvupósti á landnam@landnam.is