Tix.is

Um viðburðinn

HIP Fest

Alþjóðlega brúðulistahátíðin Hvammstangi International Puppetry Festival 

HIP Fest snýr aftur! Alþjóðlega brúðulistahátíðin Hvammstangi International Puppetry Festival – HIP Fest – fer fram í annað sinn dagana 8-10. október 2021. Á hátíðina koma á þriðja tug erlendra listamanna frá 8 löndum sem bjóða upp á fjölda sýninga og vinnusmiðja, auk fyrirlestra og kvikmyndasýninga með umræðum við listamennina á eftir, á meðan á hátíðinni stendur. 

Til að fá frekari upplýsingar um viðburði og sjá alla hátíðardagskrána skaltu kíkja á heimasíðuna okkar, thehipfest.com. 

HIP Fest er einstök viðbót í menningarlíf landsmanna, enda eina brúðulistahátíð landsins. HIP Fest var valinn menningarviðburður ársins á Norðurlandi vestra árið 2020 og skipuleggjandi hátíðarinnar, Handbendi – Brúðuleikhús, er núverandi Eyrarrósarhafi, en Eyrarrósin eru verðlaun sem veitt eru framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. 

Brúðulistin er fjölbreytt og fornt listform sem stöðugt haslar sér meiri völl í menningarlífi landsins. Á hátíðinni má líta fjölbreyttar sýningar fyrir alla aldurshópa, sem nýta sér öll blæbrigði listformsins. 

Við getum ekki beðið eftir að sjá þig á Tanganum.