Tix.is

Um viðburðinn

Orgelsumar í Hallgrímskirkju verður haldið hátíðlegt frá 3. júlí til 22. ágúst í sumar. Átta íslenskir organistar sem starfa við kirkjur víða um land leyfa Klais-orgeli Hallgrímskirkju að hljóma á hádegistónleikum frá 3. júlí til 14. ágúst. Orgelið hefur skipað stóran sess í tónleika- og helgihaldi kirkjunnar allt frá vígslu þess á aðventu 1992.

Jónas Þórir kemur fram á tónleikum Orgelsumarsins þann 14. ágúst.

Jónas Þórir (1956) kantor, tónlistarmaður og tónskáld er barnfæddur Reykvíkingur, nánar tiltekið í vesturbænum. Hann varð stúdent frá MR og hóf nám í HÍ í læknisfræði en fylgdi köllun tónlistarinnar sem reyndist eiga hug hans allan. Jónas Þórir var alinn upp á miklu tónlistarheimili þar sem pabbi hans Jónas Þórir Dagbjartsson var fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og mamma hans Ingrid Kristjánsdóttir var píanókennari við Tónskóla Sigursveins. Hann hóf 8 ára gamall nám í fiðluleik hjá Birni Ólafssyni konsertmeistara og var einn yngsti nemandi Tónlistarskóla Reykjavíkur. Seinna var Jónas Þórir nemandi Halldórs Haraldssonar á píanó og Marteins Hunger á orgel. Einnig var hann nemandi Atla Heimis Sveinssonar í tónsmíðum. Hann útskrifaðist sem tónmenntakennari og síðar lauk hann kirkju- og kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem aðalkennari hans var Björn Steinar Sólbergsson. Í Bergen var Jónas Þórir við nám í orgelleik.

Jónas Þórir var lengi vel kennari við Tónlistarskóla FÍH þar sem hann kenndi tónfræðigreinar ásamt því að vera meðleikari í söngdeild skólans. Jónas Þórir er einn af kennurum Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hann hefur verið mikilvirkur meðleikari helstu söngvara landsins og haldið tónleika víða. Jónas Þórir hefur komið að 45 geisladiskum og yfir 300 sjónvarpsþáttum m.a. Spaugstofunni.

Jónas Þórir er kantor Bústaðakirkju í Reykjavík.