Flytjendur:
Bjarni Thor Kristinsson, bassi
Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanó
Hanna Dóra Sturludóttir, mezzó-sópran
Helen Whitaker, þverflauta
Margrét Hannesdóttir, sópran
Þorsteinn Freyr Sigurðsson, tenór
Efnisskrá:
Clara Schumann: Drei Romanzen, Op. 22
Lili Boulanger: Nocturne
Robert Schumann: Spanisches Liederspiel, Op. 74
Clara Schumann samdi Drei Romanzen Op. 22
árið 1853 og tileinkaði það góðum vini sínum og fiðluleikara Joseph
Joachim. Joachim og Robert Schumann spiluðu verkið víðsvegar á sínum tíma og í
dag er þetta eitt þekktasta verk Clöru. Rómönsurnar þrjár hafa hver sinn stíl
og eru mjög spennuþrungnar og fallegar. Lili Boulanger samdi verkið Nocturne árið 1911. Þá voru verk kvenna
enn sjaldheyrð. Lili Boulanger er einna þekktust fyrir að hafa verið fyrst
kvenna til að vinna Prix de Rome. Hún samdi fjöldann allan af fallegum verkum
þó ævi hennar hafi verið stutt. Nocturne var upphaflega samið fyrir fiðlu og
píanó og er innblásið af töfrum næturinnar, þar sem glitrandi tónar píanósins
heyrast undir laglínu sem svífur yfir undirleiknum. Verkið endar á því að
hljóðfærin tvö fléttast saman, tónlistin hljóðnar og hverfur inn í nóttina. Spanisches Liederspiel Op. 74 samdi
Robert Schumann árið 1849 við spænsk ljóð úr safni Emanuels Geibels. Lögin eru
tíu talsins og eru ýmist fyrir einsöngvara, dúett eða kvartett auk píanóleiks.
Þar gætir áhrifa frá spænskri tónlist en m.a. má heyra bolero stíl í fimmta
lagi flokksins. Ljóðaleikurinn byrjar á því að stúlka sér pilt milli rósarunna
og segir móður sinni frá því. Pilturinn tekur svo við og biður stúlkuna um að
vakna og gera sig tilbúna til að fara frá heimili sínu. Flokkurinn endar svo í
raun á níunda laginu þegar pilturinn og stúlkan játa ást sína hvort á öðru þrátt
fyrir kjaftasögur fólks. Tíunda lagið, Der Kontrabandiste, er einsöngslag sem
bassinn flytur. Það tengist sögunni ekki beint. Lagið er um smyglara og hans
líf en setur virkilega líflegan og fallegan endi á verkið, og tónlistarhátíðina
Seiglu í senn.
Bjarni Thor Kristinsson er hópi þeirra íslensku óperusöngvara sem náð hefur hvað lengst á erlendri grund. Hann hóf söngnám við tónlistarskólann í Njarðvík hjá Ragnheiði Guðmundsdóttur og stundaði það síðan með hléum áfram í Tónskóla Sigursveins og Söngskólanum í Reykjavík. Haustið 1994 hélt Bjarni til frekara náms við óperudeild Tónlistarháskólans í Vín og naut þar leiðsagnar Helene Karusso og Curt Malm. Vorið 1997 var Bjarni síðan ráðinn sem aðalbassasöngvari Þjóðaróperunnar þar í borg. Þar var hann fastráðinn til þriggja ára og að þeim tíma liðnum sneri hann sér einungis að lausamennsku. Meðal helstu óperuhlutverka Bjarna má nefna: Barón Ochs í Rósariddaranum, Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu, Pímen í Boris Godunow, Rocco í Fidelio, John Falstaff í Kátu konunum frá Windsor, van Bett í Zar und Zimmermann, að ógleymdum ýmsum hlutverkum í óperum Wagners: Wotan í Rínargullinu, Pogner í Meistarasöngvurunum, Daland í Hollendingnum fljúgandi, Hinrik konung í Lohengrin, Gurnemanz í Parsifal og risanum Fáfni í Niflungahringnum. Eftir að Bjarni gerðist lausamaður í söng hefur hann verið fastur gestur í Ríkisóperunni í Berlín auk þess að koma fram í óperuhúsum í Chicago, París, Feneyjum, Verona, Flórenz, Palermo, Róm, Lissabon, Barcelona, Hamborg, Dresden, München, Wiesbaden, Karlsruhe og Dortmund svo eitthvað sé nefnt. Bjarni söng hlutverk Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu hjá Íslensku óperunni haustið 2006 og fékk Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin, sem söngvari ársins fyrir hlutverkið. Þá tók hann þátt í flutningi á verkinu Edda 1 eftir Jón Leifs með Sinfóníuhljómsveit Íslands haustið 2006 og söng einnig með hljómsveitinni við opnun tónlistarhússins Hörpu.
Eva Þyri Hilmarsdóttir stundaði nám við Det Jyske
Musikkonservatorium í Árósum, Danmörku, og lauk þaðan einleikaraprófi að loknum
prófum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Eftir það nam hún við The Royal
Academy of Music í London, en þaðan útskrifaðist hún með hæstu einkunn, hlaut
heiðursnafnbótina DipRAM og The Christian Carpenter Piano Prize fyrir
framúrskarandi lokatónleika. Helstu kennarar hennar voru Þorsteinn Gauti
Sigurðsson, Halldór Haraldsson, John Damgård og Michael Dussek. Auk fjölda
einleikstónleika hefur Eva Þyri komið fram sem einleikari með hljómsveit og
tekið þátt í frumflutningi íslenskra og erlendra verka m.a. á hátíðunum Myrkum
Músíkdögum, Ung Nordisk Musik, Young Euro Classic Festival í Berlín, Young
Composers Symposium í London og Óperudögum í Reykjavík. Undanfarin ár hefur hún
einnig lagt mikla áherslu á flutning ljóðasöngs og kammertónlistar og kom m.a.
fram á rúmlega hundrað tónleikum tileinkuðum íslenskum sönglögum í Hörpu, í
tónleikaseríunni Pearls of Icelandic Song. Eva Þyri tók þátt í uppsetningu
Íslensku óperunnar 2017 á Mannsröddinni eftir Poulenc og í desember 2018 gaf
hún, ásamt Erlu Dóru Vogler, út geisladisk með sönglögum Jórunnar Viðar í
tilefni 100 ára afmælis hennar, en diskurinn hlaut tilnefningu til
tónlistarverðlaunanna sem plata ársins 2018.
Eva
Þyri kennir við Listaháskóla Íslands samhliða tónleikahaldi.
Hanna Dóra Sturludóttir hefur um
árabil verið ein af okkar fremstu söngkonum
og hefur átt farsælan
feril á óperusviði og tónleikapalli víða um heim. Fjöldi þeirra hlutverka sem hún hefur sungið eru nú um 60 talsins. Hanna Dóra hefur
komið reglulega fram
á ljóðatónleikum, sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands á fjölmörgum tónleikum og síðastliðin ár hefur hún sungið ýmis hlutverk í sýningum Íslensku óperunnar. Má þar helst nefna titilhlutverkið í
Carmen, Eboli prinsessu í Don Carlo, Donnu
Elviru í Don Giovanni, Brothers eftir Daniel Bjarnason og Marcellinu í Brúðkaupi Figarós. Árið 2014 hlaut Hanna Dóra Íslensku tónlistarverðlaunin og fylgdi þeim nafnbótin „Söngkona ársins“
fyrir túlkun hennar á Eboli prinsessu. Hanna Dóra leggur
sérstaka áherslu á flutning nýrrar tónlistar og hefur unnið
náið með Snorra Sigfúsi Birgissyni tónskáldi undanfarin ár. Hún vakti verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína í
óperunni KOK sem frumflutt var í Borgarleikhúsinu og hlaut
tilnefningu til Grímunnar sem söngvari ársins 2021. Hanna Dóra
er aðjunkt og fagstjóri söngs við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
Helen Whitaker is verðlaunaður
flautuleikari með fjölbreyttan feril. Hún er aukaleikari við Sinfóníuhljómsveit
Íslands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og hefur spilað með Caput. Hún
stundaði nám við Trinity Laban Conservatoire of Music and Dance í London þar
sem hún hlaut ýmis verðlaun og styrki, m.a. Director’s Prize og Howard Clarke
Woodwind Prize. Hún hefur spilað með listamönnum eins og José González, Colin
Currie Group, tekið reglulega upp með hinum þekkta upptökustjóra Butch Vig og
hljómsveitinni Five Billion in Diamons og gefið út með þeim tvær plötur. Helen
er meðlimur og einn stofnanda tónlistarhópsins Personal Clutter og hefur
hópurinn hlotið styrk til að panta og setja saman ný tónverk fyrir tónleikaárið
2021-22. Helen er framkvæmdastjóri og fyrsti flautuleikari ALDAorchestra sem
hún stofnaði árið 2016 ásamt Helga R. Ingvarssyni, tónskáldi og stjórnanda.
Haustið 2019 túraði ALDAorchestra með Gerði Kristný rithöfundi til Englands og
Danmerkur og flutti verk hennar DRÁPA við nýja tónlist Helga Rafns
Ingvarssonar. Helen tók einnig þátt í síðasta óperuflutningi á Íslandi fyrir
Covid, í mars 2020, en það var rafóperan Music and the brain í Salnum Kópavogi,
eftir Helga R. Ingvarsson. Óperan var styrkt af List fyrir Alla.
Margrét Hannesdóttir er heillandi og
metnaðarfull sópransöngkona sem útskrifaðist með láði frá Westminster Choir
College (WCC) í maí 2013 með MM í söng og söngkennslu. Margrét hóf söngnám sitt
árið 2006 hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur í Söngskólanum í Reykjavík og var svo
hjá Sigrúnu Hjálmtýsdóttur í Söngskóla Sigurðar Demetz. Strax eftir nám hennar
í Bandaríkjunum söng hún sópran solo í Sálumessu Mozarts með Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins og Háskólakórnum undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Margrét
hefur svo sungið hlutverk í óperuuppfærslum bæði hérlendis og erlendis m.a.
Norinu í Don Pasquale eftir Donizetti, Susönnu í Brúðkaupi Figaros eftir
Mozart, Oberto í Alcina eftir Handel og Fyrsta piltinn í töfraflautu Mozarts. Í
umfjöllun um Don Pasquale var Margréti lýst sem heillandi Norinu í þýska
tímaritinu Wiesbadener. Margrét bjó fyrstu þrjú árin eftir útskrift úr
meistaranáminu í Þýskalandi og á Ítalíu þar sem hún var í einkanámi hjá þekktum
söngvurum á borð við Joseph Protschka, Margherita Guglielmi, Denia
Mazzola-Gavazzeni og á Íslandi hjá Sigríði Ellu Magnúsdóttur. Hún hefur sungið
á tónleikum víðsvegar bæði hérlendis og erlendis og tekið þátt í námskeiðum með
kennurum á borð við Dalton Baldwin, Julius Kalmar og Maria Pia Piscitelli.
Þorsteinn Freyr Sigurðsson hóf
söngnám árið 2005 hjá Elísabetu Erlingsdóttir við Tónskóla Reykjavíkur. Frá
2007 til 2010 hélt hann námi sínu áfram með Elísabetu en í þetta sinn við
Listaháskóla Íslands. Hann lauk mastersgráðu í söng árið 2013 við Hanns Eisler
í Berlín undir handleiðslu Prof. Scot Weir og eftir útskrift með Prof. Janet
Williams, Jóni Þorsteinssyni og Hlín Pétursdóttur Behrens. Árið 2014 hóf
Þorsteinn störf við Óperuhúsið Theater Ulm í Suður-Þýskalandi til ársins 2017
þar sem Þorsteinn söng fjölmörg aðalhlutverk. Þar mætti helst telja Ferrando í
Cosí fan tutte, Don Ottavio í Don Giovanni í óperum eftir Mozart. Nemorino í
L’elisir d’amore e. Donizetti, Camille de Rossillon í Die lustige Witwe e.
Lehár. Þorsteinn hefur einnig mikla reynslu af ljóðasöng og hefur komið fram á
tónleikum í Þýskalandi sem og á Íslandi. Síðan Þorsteinn flutti aftur til
Íslands í byrjun árs 2017 hefur hann tekið þátt í ýmsum verkefnum; Haustið 2017
söng Þorsteinn hlutverk Spoletta í uppfærslu íslensku óperunnar af Tosca e. G.
Puccini, ljóðaflokkinn Serenade no. 31 fyrir tenór og horn ásamt
strengjasveitinni Íslenskir Strengir og Joseph Ognibene Hornblásara í Salnum
kópavogi haustið 2018 og veturinn 2019 í norðurljósasalnum í Hörpu, Ljóðaflokkana
Liebesliederwalzer e. J. Brahms og Spanisches Liederspiel e. R. Schumann vorið
2019 í Salnum kópavogi og sumarið 2019 í Norðurljósasal Hörpu, Svaninn í
Carmina Burana e. Carl Orff haustið 2019 með Ungfóníu og háskólakórnum.
Þorsteinn er virkur meðlimur í ýmsum sönghópum þ.m.t. Schola Cantorum, Voces
Mascolorum og Rekkvartettinn ásamt fleirum. Ásamt einsöng og kórsöng stjórnar
Þorsteinn Drengjakór Reykjavíkur, útsetur fyrir sönghópa og kóra, raddþjálfar
sönghópa og kennir söngtækni.
Tónlistarhátíðin Seigla er haldin af Íslenska Schumannfélaginu og er styrkt af Ýli tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Tónlistarsjóði Rannís, Barnamenningarsjóði og Menningarsjóði FÍH.
Miðaverð fyrir nemendur, eldri borgara og meðlimi Íslenska
Schumannfélagsins er 3000 kr. Það má nálgast miða á afsláttarverði í miðasölu
Hörpu.
Nánar um hátíðina www.seiglafestival.is