Tix.is

Um viðburðinn

Því miður hefur viðburðinum verið aflýst vegna hertra samkomutakmarkana. 

Laugardaginn 7.ágúst ætlar  FM Belfast að bjóða upp tónleika á Vagninum, Flateyri. Í boði verður eróbikmessa að hætti hússins, einstök stemning og friður á jörðu. FM Belfast er sjaldséður hvítur hrafn á Vestfjörðum og því væri óvitlaust að nýta tækifærið, slökkva á sjónvarpinu, setja símann í vasann og eiga ógleymanlega stund í vinalegum faðmi. Svitnum saman, gleðjumst, gaman.

Hlökkum til þess að sjá ykkur!