Um viðburðinn
Rokkið er ódrepandi!
Hljómsveitin
Nykur hefur rísið úr hafi á ný og heldur sína fyrstu tónleika í Kaldalóni, Hörpu föstudaginn 17. september n.k.
Á efnisskrá verður úrval
af kraftmikilli tónlist
sveitarinnar af tveimur plötum
hennar og líka verður nokkrum velþekktum íslenskum rokkslögurum, sem meðlimir hafa komið að í gegnum
tíðina, blandað saman til kryddunar. Herlegheitin munu síðan hljóma í
víðóma hátalarakerfi Kaldalóns ásamt öflugri
mynda- og ljósasýningu
til áhrifaauka – Öllu verður tjaldað til að
hámarka rokkupplifun gesta þetta
kvöld.
Nýlega gekk Magnús Stefánsson
trommari, sem áður gerði garðinn
frægan með Utangarðsmönnum, Egó og Sálinni
hans Jóns míns, til liðs
við sveitina og fyrir eru svo enn á
fleti þeir Davíð Þór Hlinarson
(Buttercup, Dos Pilas) söngur
og gítar, Guðmundur Jónsson (Sálin
hans Jóns míns, GG blús)
gítar og bakraddir og Jón
Svanur Sveinsson (Númer núll,
Daysleeper) á bassa og bakraddir.
Rokksveitin Nykur var stofnuð sumarið 2013 og gaf út það ár sína
fyrstu plötu,
samnefnda hljómsveitinni.
Frumraunin fékk
prýðis viðtökur, tónlistin járnblendin, grípandi og var
líka gerður góður rómur
af tónleikahaldi
bandsins. Önnur plata Nykurs, Nykur II, kom síðan út 2016 með sterkum höfundareinkennum sveitarinnar en hún fetaði líka nýja krókastigu því tónlistin var margræðnari með þyngri undiröldu - rökrétt
framhald var sagt og tónleikarnir
sem fylgdu í kjölfarið
sönnuðu það.
Tónleikarnir
hefjast kl. 21:00 og kostar 3900 krónur inn.
Hér má lesa ummæli um tónlist
og hljómleika
sveitarinnar :
Nykur II var valin Plata vikunnar á Rás 2 í
apríl 2016 og þá skrifaði hinn síkviki tónlistargagnrýnandi
Arnar Eggerts m.a. eftirfarandi :
…Hér eru menn að fá vissa útrás,
Nykur er það sem kalla má ástríðusveit og sú tilfinning skilar sér í eyrun. En til viðbótar við
það rokkar platan skrambi vel, lagasmíðar eru hinar fínustu og spilamennska er
til mikillar fyrirmyndar. Gítarar Guðmundar og Davíðs Þórs (Dos Pilas) eru í fallegum
samfléttum
og Davíð er auk þess góður söngvari, fer aldrei upp í
yfirkeyrðar falsettur og ljær
textum Guðmundar
þann kraft og skýrleika sem þeir kalla eftir. Kristján B. Heiðarsson
(trommur) og Jón Svanur Sveinsson (bassi) eru þá vel
þéttir
í hryndeildinni. Stundum er þeyst áfram af krafti, stundum er aðeins hægt á sér, og stundum er hlaðið í
grípandi
smelli…
…Einfaldast er að segja, að hér tekst það sem var lagt
upp með. Sannfærandi
rokkskífa, haganlega mótuð eftir þeim forsendum sem ég hef reifað, og aðstandendum
til mikils sóma.”
Björn Jónsson
tónlistarspekúlant
og síðuhaldari Tónskrattans hafði þetta að
segja um tónleikana
Nykurs á Græna
Hattinum í apríl 2016 á Akureyri :
„Hin frábæra rokksveit Nykur hélt útgáfutónleika
á Hattinum en frekar fáir virtust með á nótunum því einungis um 20
manns sáu sér fært
að mæta. Strákarnir
létu
það ekki á sig fá og gáfu
sig alla í flutninginn. Endalaus virðing á tónlistarmenn sem leggja það á sig að
ferðast um skerið og spila svo kannski fyrir örfáar hræður, en halda samt
kúlinu. Þeir eru rétt að
byrja þessir drengir og eiga sannarlega framtíðina fyrir sér og ég spái
því að ef þeir
gefast ekki upp þá eiga Dimma og Skálmöld heldur betur eftir að vinna fyrir kaupinu
sínu ef þær sveitir ætla
að hafa roð í þessa pilta. Búinn að renna nýju plötunni oft í gegn um helgina
og það er fljótsagt að hún er frábær. Þessi fyrsta er fín en hér er það
komið sem uppá vantaði
á henni. Til hamingju Nykur og takk fyrir gott gigg á föstudaginn.“
Gagnrýni á Nykur II í maí 2016 - Björn Jónsson,
Tónskrattinn
/ 8/10
“...Þetta er plata með bæði hjarta og pung
og ástríðan leynir sér
ekki. Engin tilgerð og maður finnur að þeir eru að meina þetta án
þess að taka sig of alvarlega. Grimm gítarriff og geggjuð gítarsóló
taka mann á vit fornra frægðartíma í rokkinu fyrir allt of mörgum árum án þess að þetta
virki gamalt og þreytt...
... Erfitt er að gera upp á
milli laga og ætli
þau hafi ekki öll orðið
uppáhaldslög á einhverjum tímapunkti. Ekkert
uppfillingarefni er hér í
boði og leitun að jafnari gæðum á einni plötu. Samt, ef snúið væri upp á aðra hendi mína,
myndi ég
týna út hið
epíska
lokalag, Í
úthafi eilífðar, mögnuð smíð. Eitt af þeim lögum þar sem Roland Hartwell hjálpar til á
fiðlu við að ná fullnaðaráhrifum.
Sjáið sólin
þjást, er
hörkurokkari
sem er að heilla mig núna... „sjáið
sólina
þjást/
steypast niður
með arnarkló/ Þessi
sigur skal nást/eins og útrýming Karþagó“. Yfir urð og grjót,
vil ég
nefna líka svo og Mín eina von, fyrst ég er farinn að týna út lög. Já ég er sáttur
við þennan grip og ég var þess
fullviss er ég
heyrði frumburðinn að drengirnir ættu mikið inni. Það var ekkert sjálfgefið
að það kæmi önnur plata og því er það
ákaflega gleðilegt.”
Gagnrýni á Nykur II sumarið 2016 -
Helgi J. Glatkistan / * * * *
“...Reyndar þurfti töluvert margar hlustanir til
að fanga athyglina og gæðin, það vantar reyndar alls engin gæði í hljóðfæraleikinn, hann er alls
staðar fyrirtaks sem og söngur Davíðs en hann sprettur nú fram sem
fullþroska rokksöngvari
eftir að hafa svo oft staðið í skugga annarra. Tónlistin er hreint og klárt
gamaldags rokk úr ýmsum áttum, þarna má heyra gítarvísanir héðan og þaðan
úr rokksögunni,
allt frá Hendrix
(Í
úthafi eilífðar) til Rammstein (Sjáið sólina þjást) og því er ekki
verið að finna upp nein hjól – sem er vel því svona á rokk að hljóma, raddaðir
gítarfrasar, fyrirferðamikil sóló og auðmeltar melódíur sem þó eru ekki of
grípandi í byrjun, mér
finnst ég
jafnvel heyra óminn af Drýsli svo enn eitt dæmið sé hér nefnt. Allar söngraddanir eru enn fremur
eftir bókinni.
Sígilt,
tímalaust
og fullkomlega heiðarlegt rokk...
...En sem fyrr segir er Nykur II jöfn að gæðum, hún er mun
þyngri en fyrri platan en vinnur á við hverja hlustun og það er líka
heilmikil stígandi í henni, þannig er síðari hluti plötunnar betri að mínu mati
og nær í
raun hámarki í þremur síðustu lögunum. Niðurstaðan er því að gamla góða rokkið og rólið lifir enn ágætu lífi.”
Gagnrýni á Nykur II sumarið 2016 - Tónlistargagnrýnandinn,
facebook / 3/5
“Hér eru komin önnur plata Nykurs. Gummi Jóns og co gáfu út sína fyrstu plötu árið 2013 og vöktu athygli. Þeir hafa
tekið ákvörðun um að keyra á sömu ímynd með svipaðri plötumynd og áframhaldandi
rokki. Beint í mark
er fínt
lag. Opnir og epískir gítarhljómar keyra lagið áfram. Textinn setur strax svip
á plötuna
enda um ákveðið þema að
ræða. Nánar
um það síðar. Gummi er einn okkar allra besti gítarleikari og hann sýnir klærnar í þessu fyrsta lagi.
Þéttur rokkari sem minnir á samblöndu af Guns‘n‘Roses
og Metallicu...
...Þessi plata snýst samt aðallega
um gítarinn. Blóði drifin slóð er til að mynda verulega flott gítarrúnk,
sjá mín 2:58. Væri
eiginlega til í að fá sýnikennslu í hvernig þessi gítar
var tekinn upp. Hljómurinn í Sjáið sólina þjást er t.d. þéttari
en páfagauksrass. Mér
finnst hins vegar eins og bassinn falli aðeins í skuggann fyrir vikið enda er
hann mjög
lágt stilltur í sama lagi til að mynda. Mín eina von byrjar þar sem síðasta lag
skildi við. Áframhaldandi gítar drifið rokk en núna keyrir bassinn þetta
skemmtilega áfram....
... Heilt yfir er hér klassískt þungarokk
á ferð... ... Ef hljómsveitirnar Dimma og Skálmöld myndu eignast barn þá
liti það svona út.”
Björn „Bubbi“ Jónsson síðuskrifari Tónskrattans
gaf fyrstu Nykur plötunni
***1/2 stjörnu
í nóvember
2013 og segir meðal annars;
„Já maður heyrir sterk minni frá
gullaldarárunum án þess að það sé verið að fá áberandi mikið að láni. Eitt besta
lagið á plötunni
Illskufullar kenndir er þó undir sterkum Rainbow (Gates of Babylon) áhrifum, en það hefur
aldrei verið bannað að vera undir áhrifum... annarra hljómsveita“. Og í annan stað segir; „ Gamaldags melódískt
rokk með popp ívafi og þeir gera þetta af heiðarleika og einlægni og geta þrátt fyrir
allt verið ánægðir
með útkomuna. Vonandi kemur meira síðar og ég vil taka fram að sveitin er mjög góð á tónleikum...
þar nýtur tónlistin
sín best“.
Árni Mattíhasson
sagði m.a. í Mogganum nóvember 2013 um fyrstu Nykur plötuna / ***1/2 :
„ Í Nykri sameinast menn um rafmagnað
gítarrokk með tilheyrandi gítarsólóum og fjöri og skila skemmtilegri
skífu“ og á öðrum stað segir; „Sum
laganna semja sig í ætt við glys og hárrokk
níunda áratugarins, en önnur
sækja
innblástur lengra aftur. Lykilatriði er þó að leyfa gítarnum að hljóma,
væla,
grenja og öskra.
Þetta er mikil gítarplata, rokkuð í eitt með grimmdargítarsólóum
og bjögun“.
Umfjöllun Tinu Solda frá
Eistnaflugshátíðinni júlí 2016 :
“…less heavy but more melodic was the
following band, Nykur. Their new release had recently been Album of the Week on
RÁS 2 (as a foreign-based student of Icelandic I greatly appreciate the
benefits of internet radio), so I was halfway familiar with it and actually
ended up buying it after the show, although the studio versions do not
completely match the band’s live energy. Straightforward hard rock with good
melodies, and I’m rather glad that the occasional nods to power
metal are more discrete than the cover and the lyrics might lead the listener
to expect.”
Gagnrýni á Nykur II maí 2016 -
Marcin Kozicki :
„Album " Nykur II " sounds damn
good. The new material is fantastic, predatory, has the strength, pugnacity and
rock soul. The compositions are solid and exemplary arrangements. It is clean
energy, adequate power and clarity. It's loud and juicy, but sometimes
atmospherically and lyrically. It's really really good.