Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin GÓSS (Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar) fagnar sumrinu og heldur tónleika í Bíóhöllinni á Akranesi, föstudagskvöldið 16. júlí.

Hljómsveitin GÓSS hefur slegið í gegn með tónleikum sínum um land allt, en einnig vakti fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Góssentíð, mikla athygli og var m.a. tilnefnd sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Síðasta sumar kom svo út ábreiða af laginu Sólarsamba sem vægast sagt sló í gegn á öldum ljósvakans sem og annars staðar.

Á tónleikum GÓSS verður boðið upp á létt og skemmtilegt prógramm þar sem aðalmarkmiðið er að skapa hugljúfa og notalega kvöldstund fyrir tónleikagesti í einum fremsta tónleikasal landsins.


Hús opnar kl. 20:00 og tónleikarnir kl. 20:30.