Tix.is

Um viðburðinn

Flýtið ykkur út og sjáið fegurðina!

Listmálarinn Jóhannes Sveinsson Kjarval var ekki bara einn merkasti málari sem Íslendingar hafa átt, heldur má segja að hann hafi átt stóran þátt í að kenna þjóð sinni að meta stórbrotna náttúru landsins, náttúrunnar vegna. En hver var þessi sérkennilegi maður – og hvaðan kom hann? Í leikandi léttri fjölskyldusýningu sem byggir að hluta til á verðlaunabók Margrétar Tryggvadóttur um listamanninn, er leitast við að draga upp mynd af Kjarval; drengnum, manninum og málaranum.

Listin sjálf er sömuleiðis í brennidepli; hvernig hún er allt í kringum okkur og hefur áhrif á lífið alla daga, við horfum á listina og ef við erum heppin þá horfir hún til baka. Jóhannes Kjarval batt bagga sína ekki sömu hnútum og samferðamenn en kenndi okkur að líta umhverfið nýjum augum og sjá listina í hinu stórbrotna jafnt sem hinu hversdagslega – í hrikalegu hrauni en líka í mygluðum flatkökum.

Leikarar: Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson

Höfundur leikgerðar og leikstjóri: Stefán Hallur Stefánsson
Tónlist: Úlfur Eldjárn
Leikmynd og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir
Lýsing: Pálmi Jónsson
Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson
Leikgervi: Elín S. Gísladóttir
Sviðshreyfingar: Kata Ingva
Aðstoðarmaður leikstjóra: Rakel Björk Björnsdóttir