Tix.is

Um viðburðinn

Á ljúfu síðdegi sitja fjórar nágrannakonur í bakgarði einnar þeirra og ræða allt milli himins og jarðar: sápuóperur, barnabörnin, horfnar hverfisverslanir, drauma um að fljúga og óstjórnlegan ótta við ketti. Undir broslegum hversdeginum krauma leyndarmál og sársauki langrar ævi og allt um kring leynist yfirvofandi – eða jafnvel afstaðinn – heimsendir. Með einstökum húmor rennur teboð saman við hörmungar og náttúruhamfarir, sem eru jafn skelfilegar og þær eru kostulegar og staðfesta þau orð leikskáldsins Samuel Beckett að ekkert sé fyndnara en óhamingjan.

Caryl Churchill (f. 1938) er eitt helsta og afkastamesta leikskáld Breta síðustu áratuga, en eftir hana liggja á sjötta tug leikverka fyrir svið, útvarp og sjónvarp. Ein komst undan er skrifað fyrir fjórar leikkonur sem allar eru að minnsta kosti sjötugar og þar eru sögur eldri kvenna í forgrunni, kvenna sem hafa staðið af sér áföll og árekstra í heimi sem virðist stöðugt á heljarþröm. Í þessu magnaða verki sameina fjórar af ástsælustu leikkonum þjóðarinnar krafta sína, þær Edda Björgvinsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, Kristbjörg Kjeld og Margrét Guðmundsdóttir, í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur.

Höfundur: Caryl Churchill
Þýðandi: Kristín Eiríksdóttir
Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir
Tónlist: Garðar Borgþórsson
Leikmynd: Egill Ingibergsson og Móðeiður Helgadóttir
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Lýsing: Egill Ingibergsson
Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir