Tix.is

Um viðburðinn

FÖSTUDAGSRÖÐIN Í NORÐURLJÓSUM

Efnisskrá
Högni Egilsson - Ný verk

Hljómsveitarstjóri
Kornilios Michailidis

Högni Egilsson hefur um langt árabil verið meðal kunnustu tónlistarmanna landsins og hefur náð athygli langt út fyrir landsteinana með tónlist sinni og starfi með tónlistarhópnum Hjaltalín. Hann hefur einnig samið viðamikla tónlist fyrir þáttaröðina Katla á Netflix, sem Sinfóníuhljómsveit Íslands tók þátt í að flytja.

Högni á að baki langt nám í klassískri tónlist. Hann stundaði fiðlunám í æsku, söng með Hamrahlíðarkórnum um árabil og lauk tónsmíðanámi við Listaháskóla Íslands. Á þessum tónleikum hljómar ný sinfónísk tónlist eftir þennan virta og vinsæla tónlistarmann og er þetta í fyrsta sinn sem Högni semur sérstaklega fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Frumleg og áhugaverð sinfónísk tónlist Högna Egilssonar.