BARNASKEMMTUN Í HÖRPU
Langar þig að gera þér glaðan dag með börnunum þínum?
Þá er kjörið að kíkja í Hörpu 26. júní, því þangað ætla að mæta vinsælustu barnaskemmtikraftar landsins til að gleðja lítil hjörtu
Þau sem fram koma eru:
Ræningjarnir úr Kardemommubænum
Lína Langsokkur
Solla og Halla úr Latabæ
Vísinda Villi
Skemmtunin verður hin allra glæsilegasta og verður öll umgjörð eins og best verður á kosið.
Gleðin stendur í ca 1,5 klst og eru börn á öllum aldri hjartanlega velkomin.
Forsala miða hefst mánudaginn 21. júní kl 10:00 og verður inn á tix.is/sumar
Miðaverð aðeins 2.990 kr.
ATH - eitt verð óháð aldri eða staðsetningu í sal.