Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin Brek bregður undir sig betri fætinum og heldur tónleika víðsvegar um landið í sumar undir yfirskriftinni Vegslóðinn 2021.

Lög sveitarinnar eru sungin á íslensku en hún leggur áherslu á að nota fjölskrúðugt orðbragð og nýta þannig hinn mikla og fallega orðaforða sem íslenskan hefur upp á að bjóða.

Áhrif tónlistarinnar koma úr ýmsum áttum en Brek vill leitast við að tvinna þeim saman í sinn hljóðheim og leitast þannig við að brjóta niður múra á milli tónlistarstefna ásamt því að tengja íslenskan þjóðlagaarf við aðrar tegundir þjóðlagatónlistar. Íslenska texta og raddir í bland við samspil rytmísks og dínamísks samtals hljóðfæranna notar Brek til að drífa tónlistina áfram.

Brek hlaut eina tilnefningu til íslensku tónlistarverðlaunanna 2021 í flokknum plata ársins, þjóðlagatónlist. Tónlist sveitarinnar hefur einnig ómað á öldum ljósvakans undanfarið.

Nánari upplýsingar á www.brek.is 


24. júní kl.20:30 - Café Rosenberg, Reykjavík
25. júní kl. 20:30 - Landnámssetrið, Borgarnesi
26. júní kl. 20:30 - Félagsheimilið, Hvammstanga
30. júní kl. 20:30 - Kaffi Krókur, Sauðárkróki
1. júlí kl. 20:30 - Gísli, Eiríkur, Helgi kaffihús, Dalvík
2. júlí kl. 20:30 - Kaffi Klara, Ólafsfirði
21. júlí kl. 20:30 - Café Rosenberg, Reykjavík
22. júlí kl. 20:30 - Skyrgerðin, Hveragerði