Tix.is

Um viðburðinn

Allt í gangi er uppistandssýning þeirra Jakobs Birgissonar og Jóhanns Alfreðs sem gekk í Tjarnarbíó veturinn 2019-20. Þar taka þeir Jakob og Jóhann fyrir almennt dægurþras í bland við persónulegri málefni á skotheldri kvöldstund. Síðustu sýningar í sýningaröðinni voru felldar niður vegna Covid en nú taka þeir upp þráðinn aftur og fara með efni úr sýningunni í bland við splunkunýtt efni úr smiðju þeirra félaga. Og óvæntir gestir gætu stigið á svið.

Jakob Birgisson kom sem stormsveipur fram á sjónarsviðið með frumraun sinni, sýningunni Meistari Jakob sem um tvö þúsund gestir sóttu. Síðan þá hefur Jakob haft gamanmál að atvinnu og skemmt fólki um land allt.

Jóhann Alfreð hefur skemmt stórum hluta þjóðarinnar í yfir tíu ár með uppistandshópnum Mið-Íslandi en sýningar hópsins eru orðnar hátt í fimmta hundruð talsins.

Sjón er sögu ríkari!

Afsláttur í boði fyrir hópa. Fyrir fyrirspurnir má hafa samband við midasala@tjarnarbio.is