Tix.is

Um viðburðinn

Sem tónleikaband eru Moses Hightower þekktir fyrir vingjarnlega nærveru og metnaðarfullan flutning. Hljómsveitin gaf út sína fjórðu plötu, Lyftutónlist, síðastliðið haust, og fyrr í sumar fagnaði hún því að 11 ár eru liðin frá útgáfu frumburðarins Búum til börn. Þeir félagar hafa því úr vænum sarpi laga að moða, og lofa notalegri kvöldstund á Vagninum þann 15. júlí.
Athugið að miðaverð er 3.000 kr í forsölu en 3.500 kr við hurð.