Tix.is

Um viðburðinn

Sycamore Tree hefur unnið sig inn í hug og hjörtu landsmanna á síðustu árum og lög af síðastu plötum dúettsins “ Western Sessions “ og “ Winter Songs “ sem komu út núna árinu hafa klifið toppa vinsældarlista landsins eins og mörg lög af þeirra fyrri verkum hafa einnig gert. Það er sannarlega við hæfi að þau Ágústa Eva Erlendsdóttir og Gunni Hilmarsson haldi tónleika í hinum nýja og spennandi tónleikastað Bókabúðar Máls og Menningar sem er orðinn einn glæsilegasti tónleikasalur landsins. Hann mun smellpassa við tónlist dúettsins. Með þeim verður hinn einstaki Þorleifur Gaukur Davíðsson á Gítar, Pedal Steel og Munnhörpu. Þau munu spila lög af þeirra fyrri verkum ásamt efni af næstu breiðskífu sem kemur út seinna á árinu. Dúettinn hefur unnið sér stall sem ein besta tónleikasveit landsins og kvöldstund með þeim er ósvikin gæðastund.