Tix.is

Um viðburðinn

Efnisskrá
Doreen Carwithen - Bishop Rock 
Claude Debussy - Rapsódía fyrir hljómsveit og saxófón
Alexander Glazúnov - Saxófónkonsert

Hljómsveitastjóri
Ryan Bancroft

Einleikari 
Jess Gillam

Breski saxófónleikarinn Jess Gillam hefur vakið fádæma hrifningu tónlistarunnenda undanfarin ár. „Hún breiðir út gleði hvar sem hún fer“ sagði The Times um leik hennar, en Gillam kom meðal annars fram á hinum frægu Last Night of the Proms-tónleikum árið 2018 og diskar hennar hafa náð metsölu. Á tónleikunum flytur hún rapsódíu Debussys fyrir saxófón en einnig síðrómantískan konsert Glazúnovs, rússneska tónskáldsins sem í dag er helst kunnur fyrir að hafa kennt Shostakovitsj tónsmíðar.

Ryan Bancroft stal senunni í Malko-hljómsveitarstjórakeppninni árið 2018, þar sem bæði fyrstu verðlaun og áheyrendaverðlaun féllu honum í skaut. Bancroft er aðalstjórnandi Þjóðarhljómsveitar BBC í Wales, og tónleikarýnir The Guardian sagði nýverið að sem stjórnandi hafi hann „bæði kraft og þokka“ og að túlkun hans hafi verið „ótrúlega áhrifarík og fögur“.

Doreen Carwithen var afkastamikið breskt tónskáld um miðja 20. öld, samdi tónlist við um 30 kvikmyndir auk hljómsveitarverka og kammertónlistar. Verk hennar lágu um skeið í gleymsku en hafa undanfarin ár hlotið verðskuldaða athygli á ný. Tónleikarnir hefjast á kraftmiklum forleik sem innblásinn er af „Biskupskletti“, einmana skeri við suðurodda Cornwall á Englandi þar sem ekki er pláss fyrir nema einn vita sem lýsir sæfarendum leið.

Breskur saxófónsnillingur leikur á Íslandi í fyrsta sinn.