Tix.is

Um viðburðinn

Sönghátíð í Hafnarborg býður upp á tónleika með söngtónlist eftir íslensk kventónskáld. Björk Níelsdóttir sópran, Erla Dóra Vogler mezzósópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Hafsteinn Þórólfsson baritón og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja tónlist eftir Þórunni Guðmundsdóttur, Jórunni Viðar og fleiri.


ÍSLENSK KVENTÓNSKÁLD


Björk Níelsdóttir sópran, Erla Dóra Vogler mezzósópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór,

Hafsteinn Þórólfsson baritón, Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari



Hildigunnur Rúnarsdóttir (f. 1964) Vísur fyrir vonda krakka (Davíð Þór Jónsson)

  -Skrímslið

  -Vísan um heilbrigðu hjónin

  -Haraldur kjúklingur


Ingunn Bjarnadóttir (1905-1972)

úts. Elín Gunnlaugsdóttir (f. 1965) Þrjú lög (Kári Tryggvason)

-Svanir

  -Lóuþrælnum heilsað

  -Auðnutittlingurinn


Jórunn Viðar (1918-2017) Vorljóð á ýli (Jakobína Sigurðardóttir)

  Gestaboð um nótt (Einar Bragi)

  Þjóðlag úr Álfhamri (Guðmundur Böðvarsson)


Jórunn Viðar (1918-2017) Sætröllskvæði (Þjóðvísa)


Ingibjörg Azima Guðlaugsdóttir (f. 1973) Nótt eftir nótt (Jakobína Sigurðardóttir)


HLÉ


Þórunn Guðmundsdóttir (f. 1960) Lög við texta eftir tónskáldið

-Meðlætisblæti

-Veislumatur

-Drykkir


-Ferillinn

-Planið


-Fyrir þig (frumflutningur)

-Við Tjarnarbakkann


-Skvett úr klaufum

-Sólin og þú (Sævar Sigurgeirsson)

-Erfiljóð um arfa

-Ferðalagalag

 

Tónleikar á Sönghátíð í Hafnarborg 2021:

Þriðjudagur 22.6.2021 kl. 20:00
Fyrri master class tónleikar. Nemendur á fyrra master class námskeiði Kristins Sigmundssonar flytja sönglög og óperuaríur. Matthildur Anna Gísladóttir leikur með á píanó.

Fimmtudagur 24.6.2021 kl. 20:00
Mahler mætir Íslandi. Andri Björn Róbertsson bass-baritón, Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari flytja valin lög úr Des Knaben Wunderhorn eftir Gustav Mahler, auk laga í léttari kantinum eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Tryggva M. Baldvinsson og Þórunni Grétu Sigurðardóttur.

Föstudagur 25.6.2021 kl. 17:00
Út um allt - fjölskyldutónleikar. Ingibjörg Fríða Helgadóttir söngkona, Sigurður Ingi Einarsson gítar- og slagverksleikari og Ingvar Alfreðsson píanóleikari flytja tónleika fyrir alla fjölskylduna. Börn af tónlistarnámskeiði hátíðarinnar koma einnig fram. Ókeypis aðgangur.

Laugardagur 26.6.2021 kl. 17:00
Vinaspegill. Schola Cantorum flytur íslenska kórtónlist um vináttu, söknuð og ást. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Sunnudagur 27.6.2021 kl. 17:00
Íslensk kventónskáld. Björk Níelsdóttir sópran, Erla Dóra Vogler mezzósópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Hafsteinn Þórólfsson baritón og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja tónlist eftir Þórunni Guðmundsdóttur, Jórunni Viðar og önnur íslensk kventónskáld.

Miðvikudagur 30.6.2021 kl. 20:00
Mediterraneo. Alexander Jarl Þorsteinsson tenór, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og gítarleikararnir Francisco Javier Jáuregui og Pétur Jónasson flytja tónlist frá löndum sem liggja að Miðjarðarhafinu.

Fimmtudagur 1.7.2021 kl. 20:00
Seinni master class tónleikar. Nemendur á seinni master class námskeiði Kristins Sigmundssonar flytja sönglög og óperuaríur. Helga Bryndís Magnúsdóttir leikur með á píanó.

Laugardagur 3.7.2021 kl. 17:00
Indæla ró – barokktónleikar. Benedikt Kristjánsson tenór, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Pétur Björnsson fiðluleikari, Halldór Bjarki Arnarson semballeikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari flytja tónlist eftir G. F. Händel og J.S. Bach í bland við forna íslenska söngva.

Sunnudagur 4.7.2021 kl. 17:00
Óperugala. Gissur Páll Gissurarson tenór, Hanna Dóra Sturludóttir mezzósópran, Kristinn Sigmundsson bassi, Oddur Arnþór Jónsson baritón, Sigrún Pálmadóttir sópran og Guðrún Dalía Salómónsdóttir píanóleikari flytja aríur og samsöngsatriði úr óperum eftir Beethoven, Donizetti, Gounod, Mozart, Nicolai, Saint-Saëns og Verdi.

Allir tónleikarnir fara fram í aðalsal Hafnarborgar við Strandgötu 34 í Hafnarfirði.

Um Sönghátíð í Hafnarborg 2021:

Seigla á Sönghátíð í Hafnarborg 22.6. – 4.7.2021

Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Á hátíðinni í ár mætir til leiks einstakt úrval tónlistarmanna með fjölbreytta dagskrá. Seiglan sem hefur hjálpað okkur í gegnum hinn erfiða heimsfaraldur er þema hátíðarinnar í ár. Tónlist og ljóðlist tjá sammannlegar tilfinningar þvert yfir tíma og lönd, hjálpa okkur að skilja okkur sjálf, sjá samhengið á milli okkar og annarra, veita okkur innblástur, kenna okkur að meta fegurð lífsins og gefa okkur vonandi von um betri tíma.

Níu tónleikar verða í boði með framúrskarandi söngvurum, kór og hljóðfæraleikurum sem flytja íslenska og erlenda tónlist frá barokktímanum til okkar daga. Á hátíðinni er einnig boðið upp á ýmis námskeið.
Á Sönghátíð í Hafnarborg er ekki einungis leitast við að leggja rækt við list augnabliksins, heldur er einnig horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar valdar myndbandsupptökur af tónleikum og viðtöl við söngvara.  

Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er nú fimmta árið í röð í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Hátíðin í ár nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs, Starfslauna listamanna og Sjóðs Friðriks og Guðlaugar.

Verið velkomin á Sönghátíð í Hafnarborg!

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui listrænir stjórnendur og stofnendur Sönghátíðar í Hafnarborg

www.songhatid.is