Tix.is

Um viðburðinn

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir leikur allar sex einleikssellósvítur Johanns Sebastians Bach í Vinaminni. Sellósvítur Johanns Sebastians Bach eru perlur sellóbókmenntanna og meðal dásamlegustu verka klassískra tónbókmennta. Pablo Casals lýsti þeim sem glitrandi ljóðum í hljóðnæmu formi.

Í þessum sex verkum, sem hvert ber sinn eigin brag, tóntegund, og sérstæðu, tekur Bach flytjanda sem og hlustendur í ótrúlegt ferðalag. Þetta ferðalag hefst frá fyrsta einfalda þríhljóminum sem skapar hljóðheim fyrstu svítunnar og leiðir okkur svo í gegnum innhverfu aðra svítuna, opinskáu þriðju svítuna, spámannslegu fjórðu svítuna, tregafullu og dramatísku fimmtu svítuna, og loks, hetjulegu og sigurglöðu sjöttu svítuna.