Tix.is

Um viðburðinn

Heiða Árnadóttir söngkona og Gunnar Gunnarson píanóleikari flytja lög franska tónskáldsins Michel Legrand (1932-2019). Hann er helst þekktur fyrir að hafa samið söngleiki og tónlist fyrir kvikmyndir. Lögin verða flutt á íslensku og eru textarnir þýddir/samdir af Árna Ísakssyni og Braga Valdimari Skúlasyni.

Á efnisskránni eru meðal annars eftirtalin lög flutt á íslensku:
"what are you doing the rest of your life" úr kvikmyndinni "The Happy ending", "You must believe in spring" úr myndinni "The Young Girls of Rochefort"(1967), "Windmills of your mind" úr myndinni "The Thomas Crown affair"(1968), "The summer knows" úr myndinni "Summer of '42"(1971) og "I will wait for you" úr söngleiknum "The Umbrellas of Cherbourg" (1965).