Tix.is

Um viðburðinn

Gísli á Uppsölum er einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins. Einn stærsti viðburður íslenskrar sjónvarpssögu er Stiklu þáttur Ómars Ragnarssonar um einbúann Gísla Oktavíus Gíslason. Enn er Gísli landanum kær og hugleikinn. Hér er á ferðinni áhrifamikil sýning sem hefur hrifið áhorfendur líkt og saga söguhetjunnar.

Leikurinn hefur verið sýndur nærri 100 sinnum í Þjóðleikhúsinu og um land allt.

Einstaklega áhrifamikið verk sem snertir okkur öll

Leikari: Elfar Logi Hannesson

Höfundar: Elfar Logi Hannesson, Þröstur Leó Gunnarsson

Dramatúrg: Símon Birgisson

Tónlist: Svavar Knútur

Lýsing: Magnús Arnar Sigurðsson

            Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson