Tix.is

Um viðburðinn

Fluttar verða glæsilegar 5-8 radda mótettur og sálmavers eftir J.S. BACH og H. SCHÜTZ, útsetningar á Hallgrímssálmum eftir JÓN HLÖÐVER ÁSKELSSON og SMÁRA ÓLASON og orgelverk eftir J.S. BACH. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Mótettukórinn, sem áður starfaði við Hallgrímskirkju í Reykjavík, flytur nokkrar perlur kórtónbókmenntanna í nýju umhverfi, en mótettur eftir Bach og Schütz eru mjög krefjandi og meðal uppáhaldsverka kórsins. Auk þess syngur kórinn bænir Hallgríms Péturssonar sem alltaf hafa verið á verkefnalista kórsins og flytur þannig með sér áratuga langa tengingu kórsins við Passíusálmaskáldið Hallgrím Pétursson. Lára Bryndís Eggertsdóttir leikur einleik á hið glæsilega Noack-barokkorgel Langholtskirkju, sem hæfir orgeltónlist Bach einkar vel. Tónleikarnir eru samvinnuverkefni Mótettukórsins og Listvinafélagsins á 39. starfsári þeirra beggja.


Efnisskrá:

  1. Ég byrja reisu mín, sálmur ísl. þjóðlag úts. Smári Ólason

  2. Víst ertu Jesú kóngur klár, ísl. þjóðlag úts. Jón Hlöðver Áskelsson

  3. J.S. Bach: Der Geist hilft unser Schwachheit auf BWV 226, mótetta fyrir tvo 4 radda kóra

  4. Heinrich Schütz: Also hat Gott die Welt geliebt SWV 380, mótetta fyrir 5 raddir

  5. J.S. Bach: Dýrð sé Guði í hæstu hæðum BWV 30/6, sálmavers

  6. Heinrich Schütz: Die mit Tränen säen SWW 378, mótetta fyrir 5 raddir

  7. J.S. Bach: Flæðið, þér tár BWV 400, sálmavers, einsöngvari: Halldís Ólafsdóttir

  8. Heinrich Schütz: Die Himmel erzählen SWW 386, mótetta fyrir 5 raddir

  9. J.S. Bach: Oss minni sérhver morgunn á BWV 376, sálmavers

  10. J.S. Bach: Orgelverk

  11. J.S. Bach: Singet dem Herrn ein neues Lied BWV 225, mótetta fyrir tvo 4 radda kóra


FLYTJENDUR:

Mótettukórinn

Lára Bryndís Eggertsdóttir orgel

Sigurður Halldórsson barokkselló

Richard Korn violone

Stjórnandi: Hörður Áskelsson