Tix.is

Um viðburðinn

Með bjartsýnina að leiðarljósi ætla vinirnir Siggi Björns, Franziska Günther og Svavar Knútur að blása til innilegra tónleika á Café Rósenberg, miðvikudagskvöldið 12. maí kl. 20.
Ef Guð og Covid lofa getum við átt skemmtilega stund með söngvum og sögum úr ýmsum áttum.
Siggi og Franziska eru nýlent á Íslandi frá Þýskalandi og tóku sóttkvína á Ísafirði í góðu yfirlæti. Nú er langþráð heimsókn þeirra til fósturlandsins orðin að veruleika og þau hlakka gríðarlega til að eiga þessa kvöldstund á heimavelli þjóðlagatónlistar á Íslandi.
Rosenberg leggur áherslu á innileika og notalegheit og því eru einungis 50 miðar til sölu á tónleikana.

Viðburðinum verður einnig streymt á Facebook og Youtube, en auðvitað er langbest að vera á staðnum.