Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin Vök sendi frá sér nýja smáskífu í byrjun mars sem nefnist Lost in the Weekend. Þetta er fyrsta útgáfa Vakar frá því að þau sendu frá sér verðlaunaplötuna, In the Dark, árið 2019 en sú plata færði hljómsveitinni þrenn verðlaun á Íslensku Tónlistarverðlaununum.

Vök hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi frá því að þau unnu Músíktilraunir 2013 og hafa gefið út tvær stuttskífur (EP) og breiðskífuna, „Figure“ sem var einnig valin 'plata ársins 2017' á Íslensku Tónlistarverðlaununum.

Vök eru að vinna að sinni þriðju hljómplötu. Þau hafa löngu getið sér gott orð fyrir draumkenndan og lagskiptan hljóðheim þar sem electro og indie poppi er blandað saman. Lost in the Weekend er fyrsta sýnishornið af því sem koma skal.

Þríeykið sem myndar Vök eru Margrét Rán söngkona og lagahöfundur, Einar Stef gítar- og bassaleikari og Bergur Dagbjartsson trommuleikari.

ATH miðað við núverandi reglugerð um samkomutakmarkanir verður salurinn hólfaskiptur. Takmarkaður miðafjöldi er í boði og selt verður í sæti eins og stendur.

Forsöluverð: 3.900kr
Miði við hurð: 4.900kr