Tix.is

Um viðburðinn

Tunglhylling til heiðurs nýju tungli í hrúti. Þú býrð til þitt eigið heilaga rými heima með kertaljósi, kristöllum, reykelsi, kakói, kjarnaolíum, hverju sem þú vilt og við tengjumst svo saman í stafrænu rými. Öndunaræfingar, ásetningur, tónheilun og djúp slökun, allt í tengingu við tunglið. Athöfnin kostar 2.222. krónur.

Þú nýtur þess að iðka heima hjá þér eða á dvalarstað þínum en þetta er 90 mínútna athöfn í lifandi streymi á netinu. Þú finnur streymishlekkinn í PDF miðanum frá TIx og getur svo endurspilað athöfnina í þrjá daga eftir að henni lýkur. Til að njóta heilandi tónanna er best að nota heyrnatól eða tengja síma/tölvu við hátalara. Best er að vera á stað þar sem þú verður ekki fyrir truflun og búa vel um þig með teppi og púða. Líkamshitinn lækkar töluvert í djúpri slökun og tónheilun og því gott að vera hlýtt. 100% hreinn kakóbolli á undan setur svo punktinn yfir i-ið en hverskyns djúpslökun og hreint kakó draga úr kortisólmyndun í líkamanum en það er streituhormón líkamans. Ef þú hefur áhuga á að kaupa kakó getur þú gert það hér.

Athöfnina leiðir Kamilla Ingibergsdóttir tónheilari og yogakennari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil og kakó hefur reynst henni dásamlegur hjálpari í gegnum ýmis verkefni í lífinu. Hér má lesa meira um Kamillu og hér nánar um kakó eða svokallað ceremonial cacao.