Tix.is

Um viðburðinn

Ung-Yrkja – Sinfóníuhljómsveit Íslands
-       Tónskáldastofa Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Tónverkamiðstöðvar

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur undanfarin fimm starfsár tekið þátt í Yrkju sem er samstarfsverkefni Íslenskrar tónverkamiðstöðvar og ýmissa tónlistarstofnana og tónlistarhópa, og þannig gefið ungum tónskáldum tækifæri til að kynnast hljómsveitinni í návígi. Ung-Yrkja er nýtt verkefni innan vébanda Yrkju og er sérstaklega löguð að ungum tónskáldum sem enn eru í háskólanámi í tónsmíðum. Í ár voru valin til þátttöku tónskáldin Ingibjörgu Elsu Turchi, Katrínu Helgu Ólafsdóttur (K. Óla) og Hjalta Nordal, en þau hafa starfað með hljómsveitinni síðastliðið ár og fengið þannig tækifæri til að þróa færni sína í að semja fyrir sinfóníuhljómsveit. Á þessum hádegistónleikum í Norðurljósum frumflytur hljómsveitin verk þeirra ásamt því að Elísabet Indra Ragnarsdóttir munu spjalla við tónskáldin um verkin og tilurð þeirra.

YRKJA miðar að því að búa tónskáld undir starf í faglegu umhverfi hjá hljómsveitum, hátíðum og öðrum listastofnunum. Anna Þorvaldsdóttir, staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hefur veg og vanda af tónskáldastofunni en auk hennar vinnur Bjarni Frímann Bjarnason, staðarhljómsveitarstjóri sveitarinnar, náið með höfundum.

Takmarkað sætaframboð á tónleikana

Í samræmi við sóttvarnarlög er sætaframboð á tónleikana takmarkað við 100 tónleikagesti í tveimur sóttvarnarhólfum í Norðurljósum. Í það minnsta tvö auð sæti eru á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Gestum ber skylda að vera með grímu á tónleikunum sem eru um klukkustundarlangir án hlés. Við biðjum gesti að gæta vel að sóttvörnum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er í Hörpu. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.

EFNISSKRÁ
Ingibjörg Elsa Turchi: Anemos
K. Óla: I Gave Him a Book (with only blank pages)
Hjalti Nordal: Guð er humar

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Bjarni Frímann Bjarnason

LEIÐBEINANDI
Anna Þorvaldsdóttir

KYNNIR
Elísabet Indra Ragnarsdóttir