Hist og
Eiríkur Orri Ólafsson, trompet, hljómborð og trommuheili
Róbert Reynisson, gítar, bassi, hljómborð
Magnús Trygvason Eliassen, trommur og slagverk
Tríóið Hist og var stofnað í lok árs 2017 fyrir
tónlistarhátíðina „Norður Og Niður“ sem haldin var af meðlimum Sigur
Rósar. Meðlimir Hist og hafa starfað saman um árabil í ýmsum
hljómsveitum, svo sem múm, amiinu og Sin Fang. Sitt í hvoru lagi hafa
þeir auk þess starfað með hljómsveitum á borð við Sigur Rós, Kiru Kiru,
Benna Hemm Hemm og Seabear, ásamt ótal samstarfsverkefna á
sviði djasstónlistar með ADHD, Hilmari Jenssyni, Skúla Sverrissyni og
Mógil. Þeir beina nú stækkunarglerinu að sameiginlegum snertifleti sínum.
Tónlistin er innhverf, úthverf og slagþung blanda af djass, raf-, og
spunatónlist sem kemur víða við.