Tix.is

Um viðburðinn

28. apríl – Jónsson, Jónsson, Hemstock & Gröndal

Ólafur Jónsson, saxófónar og klarínett
Haukur Gröndal, saxófónar og klarínett
Þorgrímur Jónsson, bassi
Matthías M.D. Hemstock, trommur

Kvartettinn er ný hljómsveit leidd af bræðrunum saxófónleikaranum Ólafi og Þorgrími kontrabassaleikara. Auk þeirra koma fram Matthías Hemstock og Haukur Gröndal. Allir hafa þeir komið víða við í íslensku tónlistarlífi og leikið með rjóma íslensks tónlistarfólks og ættu því að vera gestum Múlans að góðu kunnir. Efnisskrá tónleikanna samanstendur af nýrri tónlist úr smiðju bræðranna sem er sérsamin fyrir þetta tilefni auk þess sem eldra efni verður aðlagað að hljóðfæraskipan kvöldsins. Ný framsækin jazztónlist þar sem fallegar og laglrænar tónsmíðar verða í forgrunni.