Tix.is

Um viðburðinn

Á IF4 kvikmyndahátíðinni í ár verða sýndar átta geggjaðar veiðimyndir víðsvegar að úr heiminum. Myndirnar sýna glöggt þá ástríðu sem veiðimenn búa yfir gagnvart þessu ótrúlega sporti sem fluguveiðin er. Sýnishorn úr öllum myndunum má finna á FB síðu Íslensku fluguveiðisýningarinnar.

Allt um IF4 á heimasíðu þeirra: https://www.flyfilmfest.com/  

Hverjum miða fylgir linkur á beint streymi frá sýningunni. Aðgangur gildir í 48 klst. frá auglýstum tíma og er opinn í viku. Miði gildir líka sem happdrættismiði þar sem glæsilegir vinningar eru í boði.