Tix.is

Um viðburðinn

Vitavörðurinn Trausti tengist sínum innri álfi á meðan hann undirbýr hundrað ára afmælið eða eigin jarðarför. Á sama tíma hörfar Hulda inn í heim horfinna ljóða með aðstoð stækkunarglersins síns. Þegar hann brestur í söng skipar hún honum að hætta þessum öskrum. Í Hálfum Álfi er lífinu fagnað, þrátt fyrir þann veruleika sem bíður okkar allra.

Kvikmyndin hlaut dómnefndarverðlaun Skjalborgarhátíðar sem haldin var í Bíó Paradís síðastliðið haust. Að mati dómnefndar er „ ... myndin sterk og heilsteypt saga, einlæg og tilgerðarlaus frásögn. Mynd sem hrífur mann með sér frá fyrstu mínútu og fær mann til að hlæja og gráta á víxl. “

„ Myndin er dramatísk í eðli sínu, því hún fjallar að stórum hluta um dauðann, en reglulega fyndin og skemmtileg, rétt eins og aðalpersónan sem heldur henni uppi. “ - Lestin, RUV

Frumsamin tónlist eftir Hlín Ólafsdóttur, Teit Magnússon og Sindra Frey Steinsson

Væntanleg í Bíó Paradís!

Myndin er sýnd með enskum texta!

  • ATHUGIÐ! Árskort, klippikort, frímiðar frá Bíó Paradís gilda ekki á þessar sýningar!