Karen, lífsreynd sveitapía, kemur á vel pimpaða bílnum sínum að sækja vinkonu sína Tönju, fáláta borgarsnót, sem akkúrat á því augnabliki er að lemja sokkum í andlitið á kærastanum og hætta með honum enn eina ferðina. Þær stöllur halda saman út á land þar sem þær hyggjast vinna á stóru sveitabýli yfir sumarið.
„Hvernig á að vera klassa drusla er hressandi og skemmtileg mynd sem gerir út á ærslagang og grín þar sem stelpurnar taka völdin, gefa staðalímyndum langt nef, og sýna svo ekki verður um villst að það er alveg hægt að vera klassa drusla,“ Fréttablaðið
"Myndin er afar lofandi frumraun leikstjórans og ferskur andblær í íslenskt kvikmyndalandslag," - Morgunblaðið
Sýnd með enskum texta.