Tix.is

Um viðburðinn

Helena Jónsdóttir, kvikmyndaleikstjóri, og Þorvaldur Þorsteinsson, skáld og myndlistarmaður, voru par sem nærðust á skapandi lífskrafti hvers annars. Þar til dauðinn aðskilur eru heit sem ná út fyrir tíma og rúm en Þorvaldur lést árið 2013. Helena leitar að styrk til að halda áfram með líf sitt og listsköpun samhliða því að koma arfleifð hans í örugga höfn.

Er ást hlaut Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgarhátíðar 2020.

Úr umsögn dómnefndar: „Höfundur nálgast viðkvæmt viðfangsefni af mikilli næmni og tekst að gera úr áhrifamikið verk. Einlæg og hjartnæm mynd um ástina sem minnir mann á að lifa í augnablikinu og vera þakklátur fyrir hvert andartak.“

Myndin er sýnd með enskum texta!

  • ATHUGIÐ! Árskort, klippikort, frímiðar frá Bíó Paradís gilda ekki á þessar sýningar!