Tix.is

Um viðburðinn

Hjartagull er nýr söngleikur, eftir Aron Martin Ásgerðarson, byggður á lögum og textum 200.000 Naglbíta. Sagan fjallar um Míó, ungt ljóðskáld sem upplifir sig utangarðs og á skjön við jafnaldra sína. Þegar hún lendir í rifrildi við pabba sinn hverfur hún inn í ævintýraveröld þar sem hún kynnist hinum litríku Neondýrum og baráttu þeirra við Skuggaprinsinn og börn hans sem girnast hið goðsagnakennda Hjartagull. Á vegferð sinni um þessa ævintýraveröld tekst Míó á við sjálfa sig og lærir treysta og hlusta á innsæið sitt. 

Leikfélag Menntaskólans hefur verið þekkt fyrir metnaðarfullar leiksýningar í fjölda ára en í ár koma hátt í 80 nemendur Menntaskólans á Akureyri að verkinu, hvort sem það er með leik, dansi eða tónlist, markaðsetningu, búninga-og leikmyndahönnun eða hárgreiðslu og förðun.