Þann 12. mars nk. frumsýnir Litla Kompaníið “ Óvænt uppákoma” einleik eftir Sögu Jónsdóttur og í flutningi hennar og Sunna Borg flytur ljóðabálkinn “Bergljót” eftir Björnstjerne Björnsson við píanóundirleik Alexanders Edelstein.
Tónlist eftir Edward Grieg. Þýðing Þórarinn Eldjárn
Í einleiknum er fullorðin kona að undirbúa komu gesta sem hún hefur boðið til sín í nokkru hasti. Hún rifjar upp og talar um ýmislegt sem á dagana hefur drifið og ástæðuna fyrir boðinu!
Ljóðabálkurinn “Bergljót” fjallar um valdabaráttu, mikil örlög og svik. Tónlistin er mögnuð og styður vel við flutninginn.
Litla Kompaníið hefur á undanförnum árum staðið fyrir ýmsum atburðum. T.d. var sett upp leikritið “Borgarinnan” sem fjallaði um Vilhelmínu Lever, fyrstu konuna sem kaus til sveitastjórnar á Íslandi. Sýnt í Samkomuhúsinu á 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Stuttmyndin “Saman og saman” var gerð 2017 og valin á alþjóðlegar kvikmyndahátíðir í Bíó Paradís og á Rifi.
Næstu sýningar:
13. mars kl. 20.00
19. mars kl. 20.00
20. mars kl. 20.00
Takmarkaður sýninga- og sætafjöldi
Miðaverð er kr. 4500.-
Eldri borgarar og hópar kr. 4000.-
Miðasala er hjá MAK.is
Litla Kompaníið í samstarfi við Leikfélag Akureyrar