Tix.is

Um viðburðinn

Músíktilraunir er tónlistarhátíð sem stendur yfir í 5 daga. Hátíðin á sér yfir 39 ára sögu en fyrstu tilraunirnar fóru fram árið 1982. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þátttöku með því að senda inn umsókn á heimasíðu tilraunanna og greiða þátttökugjald. Undankvöldin eru fjögur  þar sem u.þ.b. 40 -50 hljómsveitir keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið.

Um 10-12 hljómsveitir komast í úrslit og hljóta efstu þrjár sveitirnar glæsileg verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikararnir eru einnig valdir af dómnefnd en áhorfendur velja vinsælustu hljómsveitina með símakosningu. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt af Rás 2 og árið 2016 hóf Ríkissjónvarpið að streyma úrslitakvöldinu í beinni útsendingu á www.ruv.is.

Músíktilraunirnar veita frábært tækifæri til þess að fylgjast með grasrótinni í íslensku tónlistarlífi og hafa hljómsveitir á borð við Of Monsters and Men, Samaris, Vök og Between Mountains borið sigur úr bítum undanfarin ár.
Undankvöldin verða 22 maí- 25.maí 2021 kl.19:30 og er miðaverð á hvert undankvöld 1500 kr. Úrslitakvöldið er haldið 29.maí og er miðaverð 2000 kr.

Nánari upplýsingar er að finna á:
www.musiktilraunir.is
www.facebook.com/musiktilraunir
Icelandair er aðalbakhjarl Músíktilrauna.