Einir vinsælustu tónleikar Rigg viðburða
verða settir upp í Eldborg laugardagskvöldið 13. mars kl. 20:00 en þeir hafa
hlotið einróma lof undanfarin ár.
Einstök stund sem unnendur Vilhjálms Vilhjálmssonar mega ekki missa af. Frábær
skemmtun fyrir unga sem aldna!
Friðrik
Ómar syngur lög Vilhjálms ásamt hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar
píanóleikara.
Friðrik
hóf ungur að árum að syngja lög Vilhjálms. Björt og fögur söngröddin minnir
óneitanlega á áferð raddar Vilhjálms og ekki síður skýrmælgin sem einkenndi
söng Vilhjálms. Á þessum glæsilegu tónleikum mun Friðrik flytja lögin sem lifa
með þjóðinni sem Vilhjálmur söng á sínum ferli ásamt færustu hljóðfæraleikurum
þjóðarinnar. Hljómsveitarstjóri og píanóleikari er enginn annar en Jón Ólafsson
en hann skrifaði ævisögu Vilhjálms sem kom út árið 2008. Sérstakur gestur er
Katrín Halldóra Sigurðardóttir sem sló svo rækilega í gegn í hlutverki Ellýjar,
systir Vilhjálms, í Borgarleikhúsinu. Útsetningar eru í höndum Karls
Olgeirssonar.
Stutt ágrip um Vilhjálm Vilhjálmsson
Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson fæddist í Merkinesi í
Höfnum á Suðurnesjunum. Fólk man ljúfa tenórrödd þessa ástsæla
dægurlagasöngvara og það sem meira er, ungt fólk sem fætt er löngu eftir
fráfall Vilhjálms dáir lögin sem hann gerði að sínum með persónulegum og
áreynslulausum söngstíl.
Vilhjálmur ætlaði aldrei að verða dægurlagasöngvari. Stefnan var sett á
háskólanám. En enginn má sköpum renna. Fyrstu skrefin á söngbrautinni voru
stigin í menntaskólanum á Akureyri. Síðan tóku við sigrar með hljómsveitum
Ingimars Eydals og Magnúsar Ingimarssonar. Þá urðu plöturnar vinsælar sem
Vilhjálmur söng inn á ýmist einn eða með Elly systur sinni. Mörg lög lifa enn í
minningunni hátt í fimmtíu árum eftir að þau komu út, svo sem Lítill drengur,
Við eigum samleið og Bíddu pabbi svo að örfá séu nefnd.
Framleiðandi: Rigg viðburðir