Tix.is

Um viðburðinn

Fabienne er frönsk kvikmyndastjarna sem er vön að vefja karlmönnum um fingur sér. Eftir að hún gefur út endurminningar sínar snýr dóttir hennar Lumir aftur til Parísar, ásamt bandarískum eiginmanni sínum og barni. Endurfundir móður og dóttur verða viðburðarríkir og hulunni er svipt af ýmsum leyndarmálum þegar þær neyðast til þess að horfast í augu við sannleikann.

Stjörnum prýdd kvikmynd með þeim Catherine Deneuve, Juliette Binoche og Ethan Hawke í aðalhlutverkum!

Fyrsta mynd japanska leikstjórans Hirokazu Kore-eda utan heimalands síns! Frumsýnd 4. júní!

Sýnd til skiptis með íslenskum eða enskum texta!