3. mars – Kvintett Andrésar Þórs
Sigurður Flosason, saxófónn
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Agnar Már Magnússon, píanó
Þorgrímur Jónsson, bassi
Scott McLemore, trommur
Gítarleikarinn Andrés Þór leiðir hér kvintett sinn sem er skipaður einvala
liði hljóðfæraleikara í gegnum nýjar og nýlegar tónsmíðar sínar. Tónlistin
sækir áhrif sín víðs vegar að, allt frá þjóðlagatónlist ýmiskonar til
nostalgískrar rokktónlistar og er steypt í mót nýmóðins
beinstefnujazztónlistar.