Tix.is

Um viðburðinn

3. mars – Kvintett Andrésar Þórs

Sigurður Flosason, saxófónn
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Agnar Már Magnússon, píanó
Þorgrímur Jónsson, bassi
Scott McLemore, trommur

Gítarleikarinn Andrés Þór leiðir hér kvintett sinn sem er skipaður einvala liði hljóðfæraleikara í gegnum nýjar og nýlegar tónsmíðar sínar. Tónlistin sækir áhrif sín víðs vegar að, allt frá þjóðlagatónlist ýmiskonar til nostalgískrar rokktónlistar og er steypt í mót nýmóðins beinstefnujazztónlistar.