24. febrúar – Kvartett Sigurðar Flosasonar spilar Charlie Parker
Sigurður Flosason, saxófónn
Kjartan Valdemarsson, píanó
Þorgrímur Jónsson, bassi
Einar Scheving, trommur
Á tónleikunum mun kvartettinn hylla saxófónsnillinginn Charlie Parker,
einn áhrifamesta jazztónlistarmann allra tíma, en hann hefði orðið 100 ára
á síðasta ári. Fluttar verða þekktar tónsmíðar meistarans í
bland við jazz standarda sem hann hljóðritaði.