Tix.is

Um viðburðinn

Stuart Skelton syngur hrífandi og munúðarfulla ástarsöngva sem Wagner samdi við ljóð ástkonu sinnar Mathilde Wesendonck á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Stuart er einn fremsti tenórsöngvari heims um þessar mundir og hefur meðal annars komið fram við Metropolitan-óperuna í New York og La Scala í Mílanó. Hann söng hlutverk Peter Grimes í samnefndri óperu Benjamins Britten í uppfærslu Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku óperunnar á Listahátíð í Reykjavík 2015. Það er því mikið fagnaðarefni að fá hann aftur til liðs við hljómsveitina.

Forspilið að hinu mikla ástardrama um Tristan og Ísold markaði tímamót í tónlistarsögunni og sama gildir um hinn undurfagra „Ástardauða Ísoldar“, endalok verksins.

Tónleikarnir hefjast á sjaldheyrðum óbókonsert eftir Bohuslav Martinu en hann var eitt af leiðandi tónskáldum Tékklands á 20. öld. Konsertinn var saminn árið 1955 og er sérlega áheyrilegt verk, í stíl sem minnir nokkuð á tónmál Stravinskíjs. Einleikari í verkinu er þýski óbóleikarinn Julia Hantschel, sem hefur gegnt stöðu leiðandi óbóleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2018. Hljómsveitarstjóri er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveita Íslands.

Tónleikunum er útvarpað beint á Rás 1.

Takmarkað sætaframboð á tónleikana
Í samræmi við sóttvarnarlög er sætaframboð á tónleikana takmarkað við 100 tónleikagesti í fjórum sóttvarnarhólfum í Eldborg. Í það minnsta tvö auð sæti eru á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Gestum ber skylda að vera með grímu á tónleikunum sem eru um klukkustundarlangir án hlés. Við biðjum gesti að gæta vel að sóttvörnum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er í Hörpu. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.

Breyting: Efnisskrá tónleikanna hefur verið breytt að hluta frá því hún var kynnt upphaflega undir heitinu Martinu og Sibelius.

EFNISSKRÁ
Bohuslav Martinu: Konsert fyrir óbó og kammersveit
Richard Wagner: Forspil og Liebestod úr Tristan og Ísold
Richard Wagner: Wesendonck-söngvar

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eva Ollikainen

EINSÖNGVARI
Stuart Skelton

EINLEIKARI
Julia Hantschel

KYNNIR
Halla Oddný Magnúsdóttir