Tix.is

Um viðburðinn

Norræn tónlist er í forgrunni á þessari spennandi efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra.

Danska tónskáldið Carl Nielsen samdi Helios-forleik sinn í Grikklandi árið 1903, innblásinn af fornri menningu og list. Eiginkona Nielsens, Anne-Marie, var myndhöggvari og þegar henni var boðið til Grikklands slóst eiginmaðurinn með í för, fékk lánað píanó og samdi glæsilega tónlist meðan Anne-Marie vann að list sinni. Tapiola er eitt af ótal verkum sem Jean Sibelius samdi undir áhrifum frá finnskum arfi þjóðkvæða og þjóðtrúar, í þetta sinn um skógarguðinn Tapio og lendur hans. Þetta var síðasta stóra tónsmíð Sibeliusar, sem lifði í önnur 30 ár en lagði tónsmíðar á hilluna. Outi Tarkianen er fædd í Lapplandi og hefur hlotið mikið lof fyrir tónlist sína, meðal annars tilnefningu til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2018. Nýjasta verk hennar er innblásið af ís á Norðurslóðum og hægu ferli árstíðanna.

Á tónleikunum hljómar einnig nýr konsert fyrir bassabásúnu eftir Kenneth Fuchs í flutningi Davids Bobroff, sem hefur verið bassabásúnuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands svo áratugum skiptir. Fuchs hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir tónlist sína, meðal annars Grammy-verðlaun árið 2018. „Hann er meistari í því að semja fyrir hljómsveit,“ sagði BBC Music Magazine, „og tónlist hans ber vott um ríkt ímyndunarafl“. Hljómsveitarstjóri er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveita Íslands.

Tónleikunum er útvarpað beint á Rás 1.

Takmarkað sætaframboð á tónleikana
Í samræmi við sóttvarnarlög er sætaframboð á tónleikana takmarkað við 100 tónleikagesti í fjórum sóttvarnarhólfum í Eldborg. Í það minnsta tvö auð sæti eru á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Gestum ber skylda að vera með grímu á tónleikunum sem eru um klukkustundarlangir án hlés. Við biðjum gesti að gæta vel að sóttvörnum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er í Hörpu. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.

Breyting: Efnisskrá tónleikanna hefur verið breytt að hluta frá því hún var kynnt undir heitinu Eva stjórnar Wagner.

EFNISSKRÁ
Carl Nielsen: Helios-forleikur
Kenneth Fuchs: Konsert fyrir bassabásúnu
Outi Tarkiainen: Songs of the Ice
Jean Sibelius: Tapiola

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eva Ollikainen

EINLEIKARI
David Bobroff

KYNNIR
Halla Oddný Magnúsdóttir