Tix.is

Um viðburðinn

Horndeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands er feykisterkur hópur frábærra tónlistarmanna og nú gefst fágætt tækifæri til að heyra þá í sviðsljósi einleikarans, í Konsertstykki fyrir fjögur horn eftir Robert Schumann. Þetta er glæsileg tónsmíð sem sýnir hornaflokkinn í sínu allra besta ljósi.

Over Light Earth er tónsmíð eftir Daníel Bjarnason frá árinu 2012 sem hljómar nú á Íslandi í fyrsta sinn, innblásin af mikilfenglegum málverkum eftir Mark Rothko og Jackson Pollock. Verkið var samið að beiðni Fílharmóníusveitarinnar í Los Angeles og frumflutt þar undir stjórn John Adams, sem einmitt á sjálfur verk á efnisskrá kvöldsins. Shaker Loops frá árinu 1983 er eitt mest flutta verk Adams og eitt af meistaraverkum mínímalisma í tónlist, glæsilegt og þróttmikið verk þar sem strengjasveitin fær sannarlega að sýna hvað í henni býr.

Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en hann hlaut nýverið ásamt hljómsveitinni tilnefningu til hinna virtu Grammy-verðlauna.

Miðasala á tónleikana er hafin
Í samræmi við sóttvarnarlög er sætaframboð á tónleikana takmarkað við 50 manns í hvert sóttvarnarhólf. Í það minnsta tvö auð sæti eru á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta séu samkvæmt sóttvarnarlögum. Gestum ber einnig skylda að vera með grímu á tónleikunum. Tónleikarnir eru um klukkustundar langir og ekki er gert hlé. Við biðjum tónleikagesti að gæta vel að sóttvarnarreglum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er á tónleikana. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.

EFNISSKRÁ
Daníel Bjarnason: Over Light Earth
John Adams: Shaker Loops
Robert Schumann: Konzertstück fyrir 4 horn

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Daníel Bjarnason

HORNDEILD
Stefán Jón Bernharðsson
Joe Oginbene
Frank Hammarin
Asbjørn Ibsen Bruun

KYNNIR
Halla Oddný Magnúsdóttir