Tyler er efnilegasti glímukappinn í skólanum sínum en hann á sér leyndarmál, meiðsli í öxl hafa neytt hann til þess að fara að stela sterkum verkjalyfjum frá pabba sínum. Málin flækjast enn frekar þegar kærastan hans segir honum að hún sé ólétt.
Waves fylgir eftir fjölskyldu í úthverfi í Suður-Flórída - og ástríkum en stjórnsömum föðurnum - þar sem þau takast á við ástina, fyrirgefninguna og tengjast á ný eftir óvæntan missi.
Myndin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda fyrir efnistök og leik og þykir Kelvin Harrison Jr. ein skærasta rísandi stjarnan í Hollywood í dag.