Bubbi Morthens heldur 4. árið í röð hugljúfa tónleika á Valentínusardaginn 14. febrúar.
Í fyrra seldist upp á viðburðinn á örskömmum tíma. Gerðu Valentínusardaginn ógleymanlegan fyrir elskuna þína með rómantískum Bubba tónleikum.
Eins og alþjóð veit þá er lagasafn Bubba stórt og yfirgripsmikið. Þar er efni í vel rúmlega heila tónleika sem samanstanda eingöngu af ástarlögum.
Bubbi verður á einlægum nótum og mun segja sögurnar sem liggja að baki sumum laganna. Einstök stund með ástsælasta tónlistarmanni Íslands.
Húsið opnar kl. 19:30