Tix.is

Um viðburðinn

Á hátíðlegum nótum heima með þér – upptaka frá jólatónleikum Siggu Beinteins sem fram fóru í Eldborg 4.desember

Vegna samkomutakmarkanna voru engir gestir í sal þetta árið en þess í stað færir Sigga þér tónleikana heim í stofu!
Sérstakir gestir þetta árið voru Friðrik Ómar, Jógvan Hansen, Ragnheiður Gröndal og Diddú.

Einfalt og þægilegt!
Tónleikarnir eru nú aðgengilegir á leigunni hjá Vodafone og Símanum og þú getur leigt aðgang að upptöku frá tónleikunum rétt eins og þegar þú leigir mynd eða sjónvarpsþátt og greiðslan fer á símreikninginn hjá þér

Þeir sem ekki eru með myndlykil og/eða kjósa frekar að horfa á streymi í vafra í tölvu eða öðrum snjalltækjum kaupa miða hér að ofan og fá þá sent lykilorð sem hægt er að nota til að opna fyrir upptöluna inn á  www.harpa.is/sigga

Jólatónleikar Siggu Beinteins hafa verið haldnir í Eldborgarsal Hörpu undanfarin 10 ár fyrir fullu húsi og í ár var ekkert gefið eftir. Umgjörð tónleikanna var fyrsta flokks og engu var til sparað við að gera upplifunina einstaka.

Eins og venjulega mun Sigga gera sitt allra besta til koma fjölskyldunni í jólagírinn.

Hljóðfæraleikarar
Benedikt Brynleifsson á trommur
Friðrik Karlsson á gítar
Ingvar alfreðsson á pianó / hljómborð
Róbert Þórhallsson á bassa
Stefán Örn Gunnlaugsson á hljómborð
Matthías Stefánsson á fiðlu og gítar

Sérstakir gestir
Friðrik Ómar
Jógvan Hansen
Ragnheiður Gröndal
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú)

Bakraddir
Heiða Ólafsdóttir, Íris Hólm og Gísli Magna Sigríðarson

Saman færa þau þér hina einu sönnu jólastemmningu!