Tix.is

Um viðburðinn

Feimin en metnaðarfull tilvonandi kvikmyndagerðakona kynnist eldri manni og þau hefja ástríðufullt og tilfinningaríkt ástarsamband. En hann er ekki allur þar sem hann er séður og sambandið á eftir að taka sinn toll á kvikmyndagerðakonuna ungu.

Þessi sjálfsævisögulega mynd leikstjórans Joanna Hogg fjallar um fyrstu ástina, lífið og það að finna sína eigin rödd. Honor Swinton Byrne, dóttir Tildu Swinton, sýnir hér stórleik í sínu fyrsta hlutverki.