Tix.is

Um viðburðinn

Í ljósi samkomutakmarkanna vegna útbreiðslu kórónuveirunnar hefur Sinfóníuhljómsveitar Íslands ákveðið að aflýsa tónleikunum. Miðahafar geta nýtt upphæðina á aðra tónleika hljómsveitarinnar eða fengið miðana endurgreidda í miðasölu Hörpu.

Sagan um Maxímús Músíkús er eitt ástsælasta tónlistarævintýri þjóðarinnar og hefur raunar farið um allan heim við mikla hrifningu. Músin ástsæla villist inn á æfingu hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar sem hún kynnist tónlistinni af eigin raun og leiðir hlustendur með sér inn í heillandi hljóðheim sinfóníuhljómsveitarinnar. Tónlistin sem hljómar á tónleikunum er úr ýmsum áttum og má þar nefna Bolero eftir Maurice Ravel og Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns. Ævintýrið um Maxa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun og verið þýtt á fjölda tungumála.

Höfundur tónlistarævintýranna um Maxímús Músíkús er Hallfríður Ólafsdóttir en hún var leiðandi flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands í rúma tvo áratugi og eru tónleikarnir tileinkaðir minningu hennar. Þórarinn Már Baldursson víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands myndskreytir sögurnar.

Ævintýrið um Maxa og hljómsveitina er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Miðasala hefst mánudaginn 5. október kl. 13
Í samræmi við sóttvarnarlög verður sætaframboð á þessa tónleika takmarkað og eitt autt sæti milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Við biðjum tónleikagesti að gæta vel að sóttvarnarreglum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er á tónleikana.

EFNISSKRÁ
Fyrsta tónlistarævintýrið um músina ástsælu Maxímús Músíkús

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Bjarni Frímann Bjarnason

SÖGUMAÐUR
Valur Freyr Einarsson