Tix.is

Um viðburðinn

Í ljósi samkomutakmarkanna vegna útbreiðslu kórónuveirunnar hefur Sinfóníuhljómsveitar Íslands ákveðið að aflýsa tónleikunum. Miðahafar geta nýtt upphæðina á aðra tónleika hljómsveitarinnar eða fengið miðana endurgreidda í miðasölu Hörpu.

Á þessari áhugaverðu efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands getur að heyra ferska og spennandi tónlist frá 20. og 21. öld. Allt frá því að tjaldið reis á gamanóperuna Maskerade eftir Carl Nielsen árið 1906 hefur hún verið talin þjóðarópera Danmerkur, og laufléttur forleikurinn er meðal mest fluttu verka tónskáldsins. Bohuslav Martinu var eitt af leiðandi tónskáldum Tékklands á 20. öld og óbókonsert hans frá árinu 1955 er sérlega áheyrilegt verk, í stíl sem minnir nokkuð á tónmál Stravinskíjs. Einleikari í verkinu er þýski óbóleikarinn Julia Hantschel, sem hefur gegnt stöðu leiðandi óbóleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2018.

Anna Þorvaldsdóttir, staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands, er í hópi fremstu samtímatónskálda á heimsvísu og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. AION er ný sinfónía sem verður frumflutt á þessum tónleikum, en tónlistin á rætur í sinfónísku dansverki sem Anna samdi ásamt Ernu Ómarsdóttur danshöfundi. AION var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar sem frumflutti verkið við mikla hrifningu. Gagnrýnandi Dagens Nyheter lýsti þeim flutningi sem „einskonar náttúruafli“ og Anna var nýlega tilnefnd til Prince Pierre de Monaco-verðlaunanna fyrir verkið, en meðal fyrri verðlaunahafa eru György Ligeti, Sofia Gubaidulina og Elliott Carter.

Í samræmi við sóttvarnarlög verður sætaframboð á þessa tónleika takmarkað og eitt autt sæti milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Við biðjum tónleikagesti að gæta vel að sóttvarnarreglum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er á tónleikana.

EFNISSKRÁ
Carl Nielsen Maskerade, forleikur
Bohuslav Martinu Konsert fyrir óbó og kammersveit
Anna Þorvaldsdóttir AION, sinfónía

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Bjarni Frímann Bjarnason

EINLEIKARI
Julia Hantschel