Tix.is

Um viðburðinn

Jólalögin, heita súkkulaðið og allir sultuslakir í Hannesarholti 6.desember kl.14.

Þráinn Árni Baldvinsson, tónlistarkennari og gítarleikari í hljómsveitinni Skálmöld ætlar að halda í jólahefðina og mætir í Hannesarholt sunnudaginn 6. desember með jólahugvekju og söng.

Hannesarholt hlúir að sönghefðinni með því að bjóða uppá Syngjum saman tvisvar í mánuði alla jafna. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri. Textar á tjaldi svo allir geta tekið undir.

Hannesarholt er opið frá 11:30-17 og eldhúsið er opið á sunnudögum til 14.30.