Tix.is

Um viðburðinn

Romain Collin og Bergur Þórisson kanna landslag tækifæranna í að blanda akústískri tónlist og elektrónískri í frjálsum spuna á þriðju tónleikum Romains í Hljóðbergi Hannesarholts laugardagskvöldið 10.október kl.20. Tvíeykið er á leið í stúdíó á næstunni að taka upp tónlist á meðan Collin dvelur á Íslandi.

Romain Collin er framsýnt tónskáld, stórkostlegur jazzpíanisti og rísandi stjarna sem skín sannarlega skært í jazzheiminum“ skrifaði Jon Weber hjá National Public Radio í Bandaríkjunum. Collin fæddist í Frakklandi og býr nú New York en hann fluttist upphaflega til Bandaríkjanna til að sækja sér menntun við Berklee College of Music í Boston undir handleiðslu Dave Liebman og Joe Lovano meðal annarra.

Árið 2007 útskrifaðist Romain Collin frá hinum virta skóla „Thelonious Monk Institute of Jazz“ þar sem hann hlaut fullan námsstyrk sem píanóleikari í hljómsveit sem var sérstaklega sett saman af Herbie Hancock, Wayne Shorter og Terence Blanchard. Á þessum árum fór Collin í tónleikaferðalög með Hancock og Shorter víða um heim auk þess sem hann spilaði með mönnum eins og Marcus Miller, Jimmy Heath og Terence Blanchard. Síðan þá hefur hann numið undir handleiðslu Larry Goldings, Russell Ferrante, Ron Carter, Charlie Haden, Mulgrew Miller og Wynton Marsalis.

Romain Collin hefur gefið út fjórar plötur sem allar hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda. Samhliða því að þróa sinn eigin sólóferil leiðir hann tríó ásamt munnhörpusnillingnum Gregoire Maret og gítarleikaranum Bill Frisell en plata þeirra Americana kom út árið 2019. Auk þess er hann iðinn við kolann sem meðspilari á tónleikum og upptökum með fólki á borð við Mike Stern, John McLaughlin, Christian McBride, Lauryn Hill og Kurt Rosenwinkel.

Nokkrar umsagnir um Romain Collin:

[A] winning new album… There's no doubting Mr. Collin's pianism which is lucid and flowing…. His own compositions…(are) distinguished by dark grandeur, dynamic swells and a chamberesque layering of texture…distinctive.
– Nate Chinen, The New York Times

An extraordinary album…Collin's style is unique and engaging without obvious influences. 4.5 stars
– Karl Akermann, All About Jazz

An absolute masterpiece…one of those rare albums that just grabs and holds your attention from start to finish- brilliant. 5 stars
– John Adcock, Jazz Journal (UK)

A visionary composer, an extraordinary jazz pianist and a very bright young rising star in the jazz world.
– Jon Weber, NPR

Bergur Þórisson er fjölhæfur tónlistamaður og er ferill hann ævintýri líkastur. Hann starfar m.a. sem framleiðandi, tónskáld og hljóðmaður, auk þess að gera útsetningar fyrir aðra. Hann hefur aðsetur í Reykjavík og New York. Bergur hóf feril sinn í tónlist fyrir mörgum árum sem básúnuleikari á Íslandi. Hann hóf síðar að vinna að fjölbreyttari verkefnum innan tónlistar og hefur t.d. hannað og smíðað hágæða hljóðnema. Undanfarin ár hefur Bergur unnið sig upp í tónlistarbransanum. Verkefni hans hafa falið í sér að gera tónlistina við sjónvarpsþáttaröðina Broadchurch með Ólafi Arnalds sem þeir hlutu BAFTA verðlaun fyrir og vinna að tónlist með Sigur Rós, GusGus, Jóhanni Jóhannssyni og fleirum. Hann er um þessar mundir tónlistarstjóri Bjarkar og vinnur við að taka upp næstu sólóplötu hennar.

Takmarkaður sætafjöldi. Miðar aðeins seldir á tix.is

Borðapantanir í kvöldverð á undan tónleikunum í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is